Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 5 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 598:2007+A1:2009Rör, tengi og fylgihlutir úr seigu járni ásamt samsetningum þeirra til nota við fráveitur - Kröfur og prófunaraðferðirSteypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) 1.4.20101.4.2011
ÍST EN 877:1999Steypujárnsrör og -tengi, samskeyti og aukahlutir fyrir fráveitur - Kröfur, prófunaraðferðir og gæðatryggingSteypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) 1.1.20089.1.2009
ÍST EN 877:1999/A1:2006Steypujárnsrör og -tengi, samskeyti og aukahlutir fyrir fráveitur - Kröfur, prófunaraðferðir og gæðatryggingSteypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) 1.1.20089.1.2009
ÍST EN 877:1999/A1:2006/AC:2008Steypujárnsrör og -tengi, samskeyti og aukahlutir fyrir fráveitur - Kröfur, prófunaraðferðir og gæðatryggingSteypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) 1.1.20091.1.2009
ÍST EN 969:2009Rör, tengi og fylgihlutir úr seigu járni ásamt samsetningum þeirra til nota í gasleiðslur - Kröfur og prófunaraðferðirSteypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) 1.1.20101.1.2011