Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 197-1:2011 | Sement - Hluti 1: Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur fyrir venjulegt sement | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 1.7.2012 | 1.7.2013 |
ÍST EN 413-1:2011 | Sement til nota í múrvirki - Hlutii 1: Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 1.2.2012 | 1.2.2013 |
ÍST EN 459-1:2010 | Kalksteinsméla - Hluti 1: Skilgreiningar, eiginleikar og samræmisskilyrði | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 1.6.2011 | 1.6.2012 |
ÍST EN 13282-1:2013 | Rakavirk bindiefni til vegagerðar - Hluti 1: Rakavirk bindiefni til vegagerðar með hraðherslu - Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 1.11.2013 | 1.11.2014 |
ÍST EN 14216:2015 | Sement - Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur fyrir sérframleitt lághitasement | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 8.4.2016 | 8.4.2017 |
ÍST EN 14647:2005 | Kalsíumálsement - Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 1.8.2006 | 1.8.2007 |
ÍST EN 14647:2005/AC:2006 | Kalsíumálsement - Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 1.1.2008 | 1.1.2008 |
ÍST EN 15368:2008+A1:2010 | Rakavirk bindiefni án burðarhlutverks - Skilgreining, eiginleikar og samræmisskilyrði | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 1.9.2011 | 1.9.2012 |
ÍST EN 15743:2010+A1:2015 | Súlfatríkt háofnagjallssement – Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 13.11.2015 | 13.11.2016 |